Hvaða farangur er innifalinn
Hjá öllum flugfélögum er innifalinn handfarangur en það getur verið mismunandi eftir flugfélögum hvað handfarangurstaskan má vera þung, en það er yfirleitt frá 5 uppi 12 kg.
Mörg flugfélög hafa einnig innifalið í verði litla tösku/poka/veski sem maður getur sett undir sætið fyrir framan sig.
Ef það kemur upp á bókunarsíðunni að það er innifalið í bókun 1PC=23 kg. en 2PC=2x23kg. , 20, 25 30, 35 eða 40 kg. þá á það við innritaðan farangur. Ef það eru fleiri en einn farþegi í bókun þá er þetta sá farangur sem hver farþegi má hafa. Þar sem við seljum aðeins flug þar sem farangur og farþegar eru innritaðir alla leið þá eru alltaf þessar 3 farangurslausnir innifaldar í verði.
Flugi Aflýst? hvað á ég að gera?
Flugfélagið hefur samband við alla farþega sem lenda í því að flugi þeirra sé aflýst og bjóða þeim annað flug, með samstarfs aðilum eða að fá fulla endurgreiðslu á flugmiðanum.
Ef flugfélagið hefur ekki samband við þig verður þú samt að mæta út á flugvöll eins og þú sért að fara þótt þú vitir að flugi hafi verið aflýst og það stendur á heimasíðu flugvallar og heimasíðu flugfélags. Þú verður að standa við þinn hluta samnings ykkar við flugfélagið og mæta á réttum tíma í flugið þá um leið setur þú alla ábyrgð á samningi ykkar á flugfélagið. Ef þú mætir ekki fyrirgefur þú rétti þínum til skaðabóta á hendur flugfélags.
ATH. Dæmi eru um að flugfélag sendir skilaboð um að flugi ykkar sé aflýst og þú þarft ekki að mæta á flugvöll, mætið samt því annars eruð þið réttindalaus í kröfu ykkar á flugfélagið.
Öryggi alla leið
Ticket2Travel selur eingöngu flugmiða þar sem töskur eru inn ritaðar alla leið, sama hvað það eru margar millilendingar.
Allir flugvellir eru með lámarks tengitíma þar sem flugvöllurinn og þjónustufyrirtæki ábyrgast það gagnvart flugfélögum að farangur og fólk komist á milli flugvéla.
Ef það verða seinkanir á flugi þannig að farþegar missa af tengiflugi, sér viðkomandi flugfélag um gesti okkar þeim að kostnaðarlausu. Bóka þá í næsta mögulega flug en ef það er ekki fyrr en daginn eftir sér flugfélagið gestum okkar fyrir gistingu, fæði og keyrslu frá flugvelli á hótel og í flug daginn eftir.
Tengitímar á flugvöllum geta verið mjög misjafnir, dæmi í Kastrup í Kaupmannahöfn er lámarks tengitími 25 mín, í London innan sama Terminal er hann 55 mín, en í Keflavík er hann 45 mín.
Spjallið við okkur
Talaðu við okkur þú getur gert það í síma, hér á síðunni með Facebook Messenger eða með WhatsApp