Af hverju selur Ticket2Travel ekki forfallatryggingar?
- Flestir greiða með kreditkorti, en inná mörgum kreditkortum eru ferða, slysa og forfallatryggingar.
- Margir eru með heimilistryggingar hjá tryggingafélögum þar sem innifalið er ferða, slysa og forfallatrygging.
- Síðan eru líka fjöldi fólks sem er með sérstaka ferða, slysa og forfallatryggingu hjá tryggingarfélögum.
Ef við myndum selja forfalla tryggingar þá hefur þú greitt sömu trygginguna í 3 sinn, finnst þér það réttlátt?
Tökum dæmi.
Þú kaupir helgarferð hjá Icelandair, Víta, Úrval Útsýn, Heimsferðum eða sambærilegum fyrirtækjum. Þú lendir síðan í slysi og kemst ekki í ferðina.
Vegna þess að þú keyptir ferðina hjá viðkomandi fyrirtæki ásamt forfalla tryggingu, þá hefur þú samband til að aflýsa ferðinni og virkja forfallatryggingu þína.
Undantekningalaust færðu þetta svar:
Borgaðir þú ferðina með kreditkorti?
Þú svarar Já,
Viðkomandi ferðaskrifstofa gefur þær upplýsingar að þú eigir að hafa samband við kreditkortafyrirtækið.
Þú hefur samband við kortafyrirtækið.
Þeirra svar er td: Hafðu samband við VIS, því við erum baktryggð hjá VIS.
Það vill svo til að þú ert líka tryggður hjá VIS og þú hefur samband þangað og þeir leysa málið.
En hvað varð um trygginguna sem þú greiddir ferðskrifstofunni?
Jú hún gufaði upp og sá peningur var kannski notaður í starfsmannasjóð eða fór beint í vasa eiganda.
Finnst þér þetta í lagi?
Ef þú ert ekki með kreditkort eða þessar tryggingar hér að ofan hafðu þá samband við tryggingafélag og kynntu þér málið.
Ferðskrifstofur eða bókunar síður eins og okkar geta eingöngu selt tryggingar í umboðssölu fyrir tryggingafélögin. En hingað til hafa þau ekki geta boðið okkur þetta eins og er í boði á Norðurlöndum.
